„Svik af verstu sort“

Dynjandisheiði.

Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar mótmælir harðlega „seinagangi“ í hönnun og undirbúningi vegna lagningar nýs vegar yfir Dynjandisheiði. Þetta kemur fram í ályktun bæjarstjórnar sem var samþykkt samhljóða. Fram hefur komið að framkvæmdir á Dynjandisheiði hefjast í fyrsta lagi árið 2020, sama ár og Dýrafjarðargöng verða tekin í notkun.

Í ályktuninni segir að alla tíð hafi legið fyrir að nýr og uppbyggður vegur um Dynjandisheiði og til Bíldudals eru nauðsynleg forsenda þess að Dýrafjarðargöng nýtist Vestfirðingum sem samgöngubót. „Það væru svik af verstu sort við Vestfirðinga ef ekki verður tenging milli svæða á Vestfjörðum allt árið um kring, nú þegar langþráð markmið um framkvæmdir við Dýrafjarðargöng hafa loksins náðst. Einnig þýddi það að fresta ætti nýtingu þeirrar miklu fjárfestingar sem göngin eru um nokkur ár, með tilheyrandi lækkun á arðsemi þeirra,“ segir í ályktuninni.

Jafnframt telur bæjarstjórn sérstaklega ámælisvert að ekki verið hafi sett til hliðar fjármagn á árinu 2018 til að hefja framkvæmdir á nýjum vegi yfir Dynjandisheiði, líkt og gildandi samgönguáætlun mælir þó fyrir um. Vegurinn um heiðina mun leysa af hólmi 60 ára gamlan moldarveg. „Þessi vinnubrögð eru áfellisdómur yfir aðkomu Alþingis að frágangi fjárlaga yfirstandandi árs.“

DEILA