Stofna Húsafriðunarfélag í Bolungarvík

Friðaðað húsið við Aðalstræti 16 í Bolungarvík varð landsfrægt sumarið 2014.

Stofnfundur Húsafriðunarfélags Bolungarvíkur verður haldinn á morgun laugardag. Tilgangur félagsins er að stuðla að verndun og uppbyggingu friðaðra húsa í Bolungarvík með því að kaupa friðuð hús, endurbyggja og koma á starfsemi í húsunum, eins og segir í samþykkt sem lögð verður fyrir stofnfundinn.

Félaginu er ekki ætlað að að eiga og reka fasteignir, heldur eingöngu að vernda hús og koma þeim í rekstur annarra aðila.

Stofnfundurinn verður eins og áður segir á morgun laugardag og hefst kl. 14 á bæjarskrifstofunni.

DEILA