Listi Framsóknar í Ísafjarðarbæ samþykktur

Listi Framsóknarflokksins í Ísafjarðarbæ var samþykktur einróma nú í kvöld á fjölmennum félagsfundi. Listinn er skipaður fjölbreyttum hópi fólks sem kemur allsstaðar að úr víðfemu sveitarfélaginu. Áhersla var lögð á að fá ungt og hæfileikaríkt fólk í bland við reynslumeiri frambjóðendur með fjölbreyttan bakgrunn á listann. Á listanum eru 8 konur og 10 karlar, en jafnt kynjahlutfall er í efstu 16 sætunum.

Oddviti verður áfram Marzellíus Sveinbjörnsson, umsjónarmaður fasteigna Ísafjarðarbæjar, en hann hefur verið bæjarfulltrúi Framsóknar undanfarin fjögur ár og varabæjarfulltrúi þar á undan. Í öðru sæti er Guðríður Matt Þorbjörnsdóttir, leiðbeinandi, og í þriðja sæti er Kristján Þór Kristjánsson, svæðisstjóri CCEP. Elísabet Samúelsdóttir, þjónustustjóri hjá Landsbankanum, er í fjórða sætinu og Anton Helgi Guðjónsson, sjávarútvegsfræðingur, skipar fimmta sætið.

Mikil ánægja var á fundinum með listann og var strax byrjað að leggja línur fyrir þau málefni sem verða sett á oddinn fyrir næsta kjörtímabil. „Ég er gífurlega ánægður með þennan fjölbreytta og vel skipaða lista. Nú munum við bretta upp ermar við að móta áherslur fyrir næstu fjögur ár. Ég fer bjartsýnn inn í baráttuna og vongóður um góða niðurstöðu“, segir Marzellíus Sveinbjörnsson oddvit Framsóknar í Ísafjarðarbæ.

Framsókn fékk 15,56% atkvæða í síðustu kosningum og einn fulltrúa kjörinn en einungis vantaði 41 atkvæði í næsta mann inn.

  1. sæti: Marzellíus Sveinbjörnsson, umsjónarmaður fasteigna Ísafjarðarbæjar. Ísafirði.
  2. sæti: Guðríður Matt Þorbjörnsdóttir, leiðbeinandi. Ísafirði.
  3. sæti: Kristján Þór Kristjánsson, svæðisstjóri CCEP á Vestfjörðum. Ísafirði.
  4. sæti: Elísabet Samúelsdóttir, þjónustustjóri Landsbankans á Ísafirði. Ísafirði.
  5. sæti: Anton Helgi Guðjónsson, sjávarútvegsfræðingur. Ísafirði.
  6. sæti: Helga Dóra Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri og bóndi. Tröð í Önundarfirði.
  7. sæti: Hákon Ernir Hrafnsson, nemi. Ísafirði.
  8. sæti: Elísabet Margrét Jónasdóttir, skrifstofu og fjármálastjóri Íslandssögu. Bæ í Súgandafirði.
  9. sæti: Gísli Jón Kristjánsson, útgerðarmaður. Ísafirði.
  10. sæti: Violetta Maria Duda, skólaliði. Suðureyri.
  11. sæti: Barði Önundarson, verktaki. Hafrafelli.
  12. sæti: Sólveig S. Guðnadóttir, sjúkraliði. Ísafirði.
  13. sæti: Steinþór A. Ólafsson, bóndi og verktaki. Fremri Hjarðardal í Dýrafirði.
  14. sæti: Rósa Ingólfsdóttir, starfsstöðvarstjóri hjá Ríkisskattstjóra. Ísafirði.
  15. sæti: Friðfinnur S. Sigurðsson, bifreiðastjóri. Þingeyri.
  16. sæti: Guðríður Sigurðardóttir, kennari. Ísafirði.
  17. sæti: Konráð Eggertsson, æðarbóndi. Ísafirði.
  18. sæti: Ásvaldur Guðmundsson, fv. staðarhaldari. Núpi í Dýrafirði

 

DEILA