Ísafjarðarbær tryggir starfsemi Lýðháskólans á Flateyri næsta haust

Allir sem vettlingi geta valdið eru velkomnir á Flateyri á laugardaginn.

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar samþykkti í gær styrk og ábyrgðir vegna starfsemi lýðháskóla á Flateyri. Um er að ræða 10 m.kr. ábyrgð bæjarins, endurgjaldslausa aðstöðu fyrir skólann til kennslu og félagsstarfs og niðurgreiðslu á mötuneyti fyrir nemendur og starfsfólk skólans.

Lýðháskólinn á Flateyri hyggst hefja kennslu haustið 2018, með það að markmiði að skapa nýjan og nánast óþekktan valkost í íslensku menntakerfi og skapa mikilvæga viðbót við mannlíf og möguleika á Flateyri og nágrenni. Byggt verður á hugmyndafræði lýðháskóla með áherslu á mannrækt, listsköpun, sjálfbærni, þjálfun og persónuleg gildi menntunar sem slíkrar.

Helena Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Lýðháskólans á Flateyri, segir að sá stuðningur sem stofnun Lýðháskólans á Flateyri hefur hlotið í heimabyggð og hjá Ísafjarðarbæ sé gríðarlega mikils virði. „Þessi samningur er stór liður í því að tryggja fjármögnun skólans. Þar sem skólinn verður alfarið rekinn af sjálfsaflafé hefur fjármögnun verið stór þáttur í vinnu okkar síðustu mánuði, og það í nokkru kappi við tímann. Með samningnum kemur Ísafjarðarbær ekki aðeins að fjármögnun á mjög stórum liðum í rekstraráætlun skólans heldur tryggir að hægt verði að opna fyrir umsóknir 15. apríl. Við getum því tekið á móti nemendum á fyrsta skólaár í haust, jafnvel þó svo fari að fjármögnun verði ekki að fullu lokið.“

Gísli Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, fagnar sömuleiðis samstarfi við Lýðháskólann: „Þetta er ákaflega mikilvægt skref í að auðga Ísafjarðarbæ og þá alveg sérstaklega Flateyri. Það er því bæjaryfirvöldum kappsmál að lýðháskólinn hefji starfsemi sína í haust. Nemendum mun bjóðast skemmtilegt og skapandi nám í glæstri náttúru og hlýlegu umhverfi, sem hentar fullkomlega til starfseminnar. Flateyringum og öðrum bæjarbúum mun hinsvegar bjóðast sköpunarkraftur og atgervi aðkomunemenda og starfsfólks. Lýðháskólinn mun treysta byggð á Flateyri og flýta mjög framþróun og vexti í sveitarfélaginu okkar.“

-Margrét Lilja Vilmundardóttir

margretliljavilmundardottir@gmail.com

DEILA