„Dýrasti botnlangi sögunnar“

Munni Dýrafjarðarganga í Arnarfirði.

Bæjarráð Vesturbyggðar mótmælir harðlega seinagangi á framkvæmdum við vegagerð á Vestfjörðum síðustu áratugi og staðan á vegagerð í Gufudalssveit sögð með öllu fordæmalaus. Saga vegalagningar í Gufudalssveit er löng eins og landsmenn vita. Í ályktun bæjarráðs er rifjað upp að árið 2006 hafnaði Skipulagsstofnun með úrskurði að vegur yrði lagður um Teigsskóg. Sá úrskurður var kærður til umhverfisráðherra sem sneri við úrskurðinum með vísan í aukið umferðaröryggi. Úrskurður ráðherra var kærður til dómstóla. Héraðsdómur ógilti úrskurðinn, og í október 2009 ógilti Hæstiréttur úrskurð ráðherra á þeim forsendum að ekki mætti taka tillit til umferðaröryggis við mat á umhverfisáhrifum.

„Síðastliðin 12 ár hafa því verið ein samfelld sorgarsaga í vegagerð í Gufudalssveit og stjórnvöld sýnt fullkomið úrræða- og bjargaleysi í þessum málum. Og nú eru líkur á að vegagerð um Dynjandisheiði verði sama sorgarsagan,“ segir í ályktun bæjarráðs Vesturbyggðar.

Hvað Dynjandisheiði varðar er vísað til nýlegra fregna um að engin fjármögnun á framkvæmdum á heiðinni liggur fyrir og bæjarráð segir að það stefni í að Dýrafjarðargöng verði dýrasti botnlangi sögunnar.

„Það er ljóst að Vestfirðingar hafa verið sviknir um vegagerð ítrekað. Einstakir sumarbústaðaeigendur hafa því miður stýrt för og hafa árstíðabundnir hagsmunir þeirra verið látnir ganga framar hagsmunum fólks sem býr á svæðinu.“

DEILA