Vestri og Hamraborg blása til körfuboltamóts

Yngsta hollið á Hamraborgarmótinu í fyrra með meistaraflokki Vestra.

Hið árlega Hamraborgarmót körfuknattleiksdeildar Vestra og Hamraborgar verður haldið á mánudaginn kemur, 26. febrúar. Það er meistaraflokkur karla sem stendur að mótinu og býður hann til keppni öllum börnum í 1.-6. bekk grunnskóla. Allir á þessum aldri eru velkomnir, hvort heldur sem þeir æfa körfubolta að staðaldri eða ekki.

Mótinu verður tvískipt og hefja yngstu keppendur í 1. og 2. bekk leik kl. 16 en þeir eldri byrja kl. 17. Að keppni lokinni í hvorum aldurshópi er þátttakendum boðið upp á rjúkandi heitar pizzur úr Hamraborg. Mótið fer fram í íþróttahúsinu á Torfnesi, á spánýju og glæsilegu parketgólfi, og er allt til reiðu fyrir skemmtilega keppni.

Allstór hópur iðkenda Vestra er senn á leið á Nettómótið í Reykjanesbæ, sem er landsins stærsti körfuboltaviðburður. Það fer fram fyrstu helgina í mars og því er Hamraborgarmótið kærkomið tækifæri til að æfa aðeins spilið áður en haldið er suður með sjó til að takast á við mótherja úr öðrum landshlutum.

DEILA