Vestfirðir mælast lægst

Ketildalir í Arnarfirði. Mynd: Mats Wibe Lund.

Vestfirðir mælast lægst íslenskra landshluta í samanburði á efnahagslegri og félagslegri stöðu og horfum fyrir einstaka landshluta á Norðurlöndum. Út er komin skýrsla Norrænu ráðherranefndarinnar um stöðu landshlutanna.

Samkvæmt skýrslunni eru landshlutarnir á Norðurlöndum 74, þar af 8 á Íslandi. Færeyjar og Grænland eru flokkuð sem einn landshluti. Við samanburðinn á stöðu norrænu landshlutanna er horft til breytinga sem orðið hafa á síðustu tveimur árum hvað varðar þróun íbúafjölda og samsetningu, atvinnustig og þátttöku á vinnumarkaði og þróun hagvaxtar. Níu þættir eru mældir sem fá ákveðið vægi við útreikninga sem samanburðurinn byggist á.

Höfuðborgarsvæðið lendir í fjórða sæti í samanburði landshluta á Norðurlöndunum og Vestfirðir eru í 24. sæti.

Staða Vestfjarða hefur þó breyst talsvert frá síðustu mælingu, en svæðið hækkar um 17 sæti sem setur það efst af fimm hástökkvurum milli mælinga ásamt Vesturlandi, sem hækkar um 21 sæti og Norðurlandi vestra, sem hækkar um 18 sæti. Í skýrslunni er tekið fram að Vesturland hafi bætt við sig stigum á öllum þeim þáttum sem mældir eru og var sérstaklega sterkt þegar kemur að atvinnuþátttöku og hagrænum atriðum. Það er þó sammerkt með öllum íslensku svæðunum að þau hafa hækkað talsvert frá fyrri mælingu.

DEILA