Stríðið í Sýrlandi í Vísindporti

Sýrland er í rúst eftir blóðuga styrjöld sem hefur staðið í tæp sjö ár.

Gestur vikunnar í Vísindaporti vikunnar er Guðrún Margrét Guðmundsdóttir, nýráðin verkefnastjóri Rauða krossins vegna móttöku flóttamanna á norðanverðum Vestfjörðum. Hún mun fjalla um stríðið í Sýrlandi og líf í flóttamannabúðum í nágrenninu, m.ö.o. gera grein fyrir þeim veruleika sem hluti hinna nýju íbúar hér á norðanverðum Vestfjörðum koma úr.

Skoðað verður hvernig tiltölulega sakleysisleg mótmælaalda gegn stjórnvöldum, hluti hins svokallaða arabíska vors í Sýrlandi árið 2011, sprakk út í allsherjar styrjöld á ógnarhraða, með fjölda utanaðkomandi fylkinga og bandalaga. Langvarandi stríðið hefur kippt lífinu undan fótum milljóna Sýrlendinga sem neyðst hafa til að flýja heimkynni sín; fjölskyldu, vini, vinnufélaga, garðinn með sítrónutrjám og kryddjurtum, og halda útí óvissuna í leit að skjóli og nýjum heimkynnum, líkt og í tilfelli fólksins sem er nú á leið til Íslands.

Guðrún Margrét Guðmundsdóttir.

Guðrún Margrét Guðmundsdóttir er mannfræðingur frá Háskóla Íslands og hefur undanfarin ár tekið þátt í fjölmiðlaumræðu um málefni Miðausturlanda, þ. á m. átökunum í Sýrlandi, Írak og Jemen, auðlinda- og yfirráðapólitík (geo-politics) sem oftar en ekki er undirliggjandi ástæða átakanna, kvenréttindabaráttu svæðisins einkum við Arabíuflóa og íslamskan femínisma og íslamófóbíu. Guðrún Margrét bjó við Arabíuflóa og Jemen, frá árunum 1985 – 1995 og hefur einnig dvalið þar langdvölum sl. 10 ár, m.a. við rannsóknir. Einnig starfaði hún hjá Íslensku friðargæslunni hjá Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna í Kairó á síðasta ári.

Vísindaportið er að vanda í hádeginu á föstudaginn og hefst kl. 12:10 í kaffistofu Háskólasetursins. Vísindaport eru öllum opin.

Uppfært:

Erindinu hefur verið frestað af óviðráðanlegum orsökum.

 

 

 

 

 

SaveSave

SaveSave

DEILA