Óttast frekari samþjöppun aflaheimilda

Lilja Rafney Magnúsdóttir

Lilja Raf­ney Magnús­dótt­ir, formaður at­vinnu­vega­nefnd­ar og þingmaður VG í Norðvesturkjördæmi, boðar end­ur­skoðun veiðigjalda og seg­ir und­ir­bún­ing þess haf­inn í sjáv­ar­út­vegs- og land­búnaðarráðuneyt­inu. Þetta kom fram í umræðum á Alþingi í gær.

Lilja Rafney sagði lít­il og meðal­stór sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki og sveit­ar­fé­lög hafa mikl­ar áhyggj­ur af veiðigjöld­um. Sagði hún að litlar út­gerðir þoli ekki 200-300% hækk­un á veiðigjöld­um og að núverandi fyrirkomulag geti leitt til þess að fyrirtæki gefist upp með frekari samþjöppun aflaheimilda. „Þetta getur gerst mjög hratt. Við verðum að horfast í augu við það og bregðast við,“ sagði Lilja Rafney á Alþingi.

Frá því í janúar hefur atvinnnuveganefnd fengið fjölda gesta til sín til að ræða veiðigjöldin, fulltrúa útgerða, sveitarfélaga, landshlutasamtaka og fiskmarkaða.

DEILA