„Lítum á þetta sem samfélagsverkefni“

F.v. Bryndís Sigurðardóttir, fráfarandi riststjóri og eigandi bb.is, Arnar Kristjánsson og Gunnar Þórðarson.

Nýir eigendur hafa tekið við stjórnartaumunum hjá bb.is. Þeir eru Gunnar Þórðarson, Shiran Þórisson, Daníel Jakobsson og Arnar Kristjánsson. Samningar um kaup á fjölmiðlinum var undirritaður í gær. Gunnar segir að þetta hafi borið mjög brátt að. „Þegar við fregnum að allt stefndi í að miðlinum yrði lokað fannst okkur það ótækt, það er mikilvægt fyrir okkur Vestfirðinga að hér sé starfandi fjölmiðill. Því fórum við út í þetta. Við lítum á þetta sem samfélagsverkefni,“ segir Gunnar.

Hann segir að fljótlega, mögulega í næstu viku, verði kallað saman á stofnfund félags um rekstur á bb.is. „Okkur finnst mjög mikilvægt að hópurinn sem stendur að þessu verði breikkaður og viljum fá fleiri inn í eigendahópinn. Við sjáum fyrir okkur að það verði stofnuð ritstjórn með breiða skírskotun þannig að blaðið verði hafið yfir pólitíska flokkadrætti,“ segir Gunnar.

DEILA