Daði Freyr kemur heim

Daði Freyr á lokahófi Vestra í haust.

Vestri og FH hafa náð samkomulagi um það að Daði Freyr Arnarson spili með Vestra í 2. deildinni í sumar. Daði Freyr er ungur og efnilegur markmaður, eins og flestir sem fylgjast með Vestra ættu að vita, en hann stóð í markinu Vestramanna á síðasta tímabili.

Á lokahófi Vestra í haust var Daði Freyr valinn leikmaður tímabilsins af leikmönnum og Vestramenn vænta mikils af honum í baráttu deildarinnar í sumar.

DEILA