Anna Gréta ráðin mannauðsstjóri

Anna Gréta Ólafsdóttir hefur verið ráðin sem mannauðsstjóri hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða til næstu 5 ára og hóf hún störf í dag. Anna Gréta sem er 35 ára að aldri, er menntaður íþróttafræðingur í grunninn með meistarapróf í menningarstjórnun. Undanfarin fimm ár hefur hún starfað sem skólastjóri, fyrst við Reykhólaskóla og svo við Flóaskóla. Þá hefur Anna Gréta talsverða reynslu af félags-, íþrótta- og menningarmálum.

DEILA