Sveinseyrarflugvöllur gæti orðið kórónan í samgöngum á Vestfjörðum



Þingeyrarakademían að störfum. Mynd: Kristján Ottósson

Þingeyrarakademían beinir þeim eindregnu tilmælum til ráðamanna að skoða nú vel og vandlega hvort aðalflugvöllur fyrir Vestfirði sé ekki best staðsettur á Sveinseyrarodda í Dýrafirði. Athugun fór þar fram á vegum Flugmálastjórnar fyrir all mörgum árum, veðurathuganir og fleira. Síðan hefur ekkert heyrst um það mál.

Í ályktun akademíunnar segir:



„Það væri vissulega fróðlegt að fá Sveinseyrarflugvöll inn í umræðuna í dag. Þar er miklu meira rými og opnara en ég veit um annars staðar á norðanverðum Vestfjörðum. Og ekki þarf að efast um undirstöðuna. Sennilega er hvergi betri aðstaða fyrir millilandaflug. Það þýðir að hægt væri að fljúga þangað milliliðalaust með erlent ferðafólk. Og fljúga svo þaðan með ferskan fiskinn, til dæmis lax og silung, beint á erlenda markaði. Um það var reyndar talað á sínum tíma.“
Svo mælti vestfirski vegagerðarmaðurinn Guðmundur St. Gunnarsson fyrir nokkru í viðtali á Þingeyrarvefnum. Guðmundur hefur flogið vítt og breytt um Vestfirði í hálfa öld og veit hvað hann er að tala um.
Sunnanverður Dýrafjörður er einhver veðursælasti staður landsins. Dýrafjarðargöng og heilsársvegur suður af þeim mun gjörbreyta samgöngum á landi á Vestfjörðum. Þær samgöngubætur munu þjappa Vestfirðingum saman. Flugvöllur á Sveinseyri gæti hugsanlega orðið kórónan á því verki.

Þingeyrarakademían er stór hópur spekinga á öllum aldri sem stundar morgunsund og heita pottinn á Þingeyri. Þar eru ýmiskonar innanlands- og heimsvandamál rædd og jafnvel leyst. Þingeyrarakademían kemur til dyranna eins og hún er klædd.

DEILA