Stórleikur í kvöld

Hinrik Guðbjartsson átti stórleik gegn Skallagrími.

Í kvöld verður leikur í toppbaráttunni í 1. deild Íslandsmótsins í körfubolta þegar Vestri og Snæfell mætast á Ísafirði. Vestri er í þriðja sæti deildarinnar með 24 stig og Snæfellingar eru í fimmta sæti með 18 stig. Leikurinn hefst kl. 19:15 og nú verður kátt í höllinni því áhorfendabekkirnir verða dregnir út í fyrsta sinn síðan nýja gólfið var tekið í notkun.

Vestri hafði betur gegn toppliði Skallagríms á heimavelli á föstudagskvöld, 95-89. Þetta var gríðarlega mikilvægur sigur í baráttunni í efri hluta 1. deildar og gæti vegið þungt þegar upp er staðið.

Leikurinn á föstudag gegn Skallagrími var hnífjafn og spennandi, rétt eins og fyrri leikur liðanna í Fjósinu í Borgarnesi í haust. Frábær fyrri hálfleikur hjá Vestra gerði sennilega útslagið, einkum annar fjórðungurinn sem Vestri vann 33-25. Hinrik Guðbjartsson átti stórkostlega innkomu í sínum fyrsta heimaleik með Vestra en hann lék með liðnu á síðasta tímabili. Á átta mínútum skoraði hann 16 stig og var með 71% skotnýtingu. Því miður meiddist Hinrik undir lok háflleiksins og gat ekki tekið þátt í leiknum eftir það. Skotnýting Vestra var með miklum ágætum og gerði útslagið. Liðið var með 44% nýtingu í þriggjastiga skotum og 57% tveggja í tveggja stiga skotum.

DEILA