„Í skugga valdsins“ setur Ragnar Önundarson hlutina í samhengi

Hugsanlega ásættanleg mynd fyrir stjórnmálakonu

Það er ekki bara í útlöndum sem káfandi dónar og ofbeldismenn fá á baukinn og konur sem hafa fengið sig fullsadda af framkomu þeirra. Konur í stjórnmálum á Íslandi hafa nú tekið saman höndum og krefjast eðlilegrar framkomu í sinn garð. Á leynilegri facebooksíðu hafa konur skrifað undir kröfu um að karlar og stjórnmálaflokkar taki ábyrgð á niðurlægjandi og ofbeldisfullri hegðun gagnvart konum og á síðunni koma líka fram sláandi sögur um reynslu kvenna í stjórnmálastarfi.

Í Kastljósi í gær mættu þrjár konur í stjórnmálum, þar á meðal Jóhanna María Sigmundsdóttir þingkona Norðvesturkjördæmis frá árinu 2013-2016. Allar lýstu þær óviðunandi og dónalegri framkomu í sinn garð.

Í kjölfar Kastljóssins birtir Ragnar Önundarson fyrrverandi forstjóri Eurocard færslu á facebook síðu sinni þar sem hann gerir athugasemd við „prófílmynd“ Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur. Óafvitandi setur Ragnar þarna hlutina í samhengi, orð Áslaugar skulu metin út frá útliti hennar og ýjar að því að með fantagóðri mynd af fallegri stúlku sé hún að bjóða upp á áreitni.

Hér að neðan er ályktun hópsins, nokkrar reynslusögur og fyrsti hluti undirskriftarlistans en í lok vikunnar er von er á lengri lista og fleiri óhuggulegum reynslusögum.

 

Áskorun til stjórnmálanna Í SKUGGA VALDSINS #METOO

Kynferðisofbeldi og áreitni á sér stað í stjórnmálum rétt eins og annars staðar í samfélaginu.

Meðfylgjandi eru frásagnir kvenna sem lýsa reynslu sinni.

Það verður að verða breyting á. Við krefjumst þess að allir karlar taki ábyrgð, að allir stjórnmálaflokkar taki af festu á málinu, setji sér viðbragðsreglur og lofi konum að þær þurfi ekki að þegja meir því þær muni fá stuðning.

Reynslusögur:

Eitt: Síðan ég byrjaði að starfa í pólitík hafa nokkrir menn úr stjórnmálaflokknum, og þá flestir giftir menn verið að senda mér skilaboð á kvöldin. Menn gera sér upp misjöfn tilefni til þess að hafa samband. Segjast vilja hjálpa mér ef mig vanti einhverja hjálp t.d. Ég velti því fyrir mér hvort að þeir vilji eiga inni hjá mér greiða eða hvort þeir séu að sýna að þeir séu valdameiri. Svo koma komment eins og: þú ferð nú í framboð er það ekki? Þú hefur allavega kinnbeinin í það. (já stelpur, þið sem eruð með kinnbein, drífið ykkur í framboð!) Svo hef ég líka fengið: þú ert nú með röddina í það, oh þessi rödd! Einn af þessum mönnum veit ég til að hefur verið að hafa samband við fleiri ungar konur í flokknum. Já ég er einhleyp, ung kona, en ég gekk ekki inn í stjórnmálastarf til þess að hafa ofan af fyrir giftum mönnum sem eru ef til vill orðnir leiðir á konunum sínum.

Tvö: Ég var einu sinni í Finnlandi á UNR sem er Ungmenna þing Norðurlandaráðs sumsé þvert á alla flokka þegar ég mæti í kjól og hælum fyrir dinnerinn segir hann NEI loksins sexy og sæt kona í vinstri pólitík, sama kvöld talaði hann við nokkra aðra stráka um þetta og í hvert skipti sem ég og sænsk vinkona mín gengum nálægt honum þá þurfti hann að kommenta á útlit okkar. Óþolandi og gerði mig alltof meðvitaða um sjálfa mig, áttum svo eftir heilan dag af þinginu og ég meikaði bara ekki að tjá mig daginn eftir á fundinum.

Annars á svipuðum event sat ég með nokkrum ungum konum af öllum flokkum þar sem var farið yfir hvaða þingmenn væru mestu perrarnir á þessum þingum.

Það er því miður þannig að flestar af ungu konunum sem taka þátt í þessum þingum hafa lent í perraköllum og sumar hafa bara mjög grófar og ógeðslegar sögur. Margar hafa fengið beina hótun um að pólitískur ferill þeirra yrði bara ekki að neinu ef þær væru ekki til í að borga fyrir það einhvern veginn

Þrjú: Eftir umræðufund um málefni tengt Íraksstríðinu hélt hópurinn á bar og þar sem ég sat og ræddi við stjórnmálamenn tvo og einn vin þeirra um mál fundarins, fór vinurinn upp úr þurru að benda á hvað ég væri með fallega brjóstaskoru. Mér þótti þetta augljóslega óþægilegt og bað hann um að hætta þessu, en hann hélt áfram. Ég sat þarna klemmd á milli mannanna, enginn kom mér til varnar, ég fór. Hvað hafði eiginlega gerst, í miðri málefna umræðu var ég á svipstundu orðin hlutur í augum þriggja manna. Ég á fleiri svona sögur.

Fjögur: Er komin fram sagan af karlkyns borgarstjóranum sem fór með gamanmál í fjölmennri veislu í Viðey á vegum borgarinnar? Þar fjallaði hann um ,,gangtegundir” kvenna. Þær hafa nefnilega bara tvenns konar gang: frekjugang og yfirgang. Þetta var á þessari öld notabene.

Fimm: Einn af upprennandi stjórnmálamönnunum er með margar „óstaðfestar“ sögur um áreitni gagnvart ungum konum. Innan flokksins var gert mál úr þessu og reynt að láta hann sæta ábyrgð. Einhverjar konur gátu ekki hugsað sér að starfa með flokknum vegna þessa manns. Ekkert kom út úr málinu og maðurinn starfar í flokknum eins og ekkert hafi í skorist enda er svo rosalega dramatískt að hefta pólitískan feril ungs manns þrátt fyrir sögusagnir.

Sex: Ég er nýkjörin formaður í nýju kjördæmisfélagi flokks. Öflugt félag strax, fundarherferðir, umræður og stuð…. ýmsir karlmenn meika mig ekki og eru sífellt að reyna að skrúfa mig niður.. .. nokkrir ganga lengra, niðrandi komment og niðurrif, örfáir en fleiri en tveir, káf og tilraunir til að komast lengra…. Engum tókst en hafði þau áhrif að mig langaði ekki að vera í forystu…þeirra….

Sjö: Ég get ekki talið upp öll þau skipti sem mér hefur beint og óbeint verið hótað nauðgun vegna skoðana minna. Ég hef engan áhuga á að hafa það eftir, en ég hef oft lesið um allskonar hluti sem ég hefði gott af og hvernig væri nú best að þagga niður í mér.

Átta: Að taka þátt í prófkjöri var ávísun á að þurfa „þola“ kossa, þukl og faðmlög frá flokksMönnum, helst með bros á vör, (annars myndu Þeir ekki kjósa þig).

Níu: Ég hef verið þátttakandi í pólitísku starfi allt frá menntaskólaárum. Ég hef oft orðið fyrir niðurlægjandi ummælum og framkomu sem beinlínis má rekja til þess að ég er kona, en ég hef ekki orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi í störfum mínum í nefndum, í framboði, í borgarstjórn, á alþingi eða í ráðuneyti. Það er ástæðan fyrir því að ég skrifaði ekki undir áskorunina en sé svo að það hafa nokkrar gert, sem eins er ástatt um. En utan hins pólitíska vettvangs – bæði í vinnu og í skemmtanalífi hef ég lent í alls konar – eins og sagt er.

Undirskriftir:
1. Heiða Björg Hilmisdóttir, Varaformaður og borgarfulltrúi, Samfylkingin
2. Guðlaug Svala S Kristjánsdóttir, forseti bæjarstjórnar, Björt framtíð Hafnarfirði
3. Drífa Snædal, fyrrverandi framkvæmdastjóri Vg.
4. Sigríður Erla Sturludóttir, 2. Varaformaður Sambands ungra sjálfstæðismanna
5. Claudia Overesch, Alþýðufylkingin
6. Sanna Magdalena Mörtudóttir, varaformaður bráðabirgðarstjórnar Sósíalistaflokks Íslands
7. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Viðreisn.
8. Silja Jóhannesdóttir – stjórnarmeðlimur í Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar
9. Jóhanna María Sigmundsdóttir, fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins
10. Nikólína Hildur Sveinsdóttir – alþjóðaritari Ungra jafnaðarmanna, ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar.
11. Björt Ólafsdóttir. Ráðherra Björt Framtíð
12. Líneik Anna Sævarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins
13. Hildur Þórisdóttir, varabæjarfulltrúi L- lista á Seyðisfirði og formaður Samfylkingar á Seyðisfirði.
14. Þórey Vilhjálmsdóttir, fyrrverandi formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna
15. Hulda Sigrún Guðmundsdóttir Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins Fjarðabyggð
16. Sabine Leskopf, varaborgarfulltrúi Samfylkingarinnar
17. Herdís Sigurjónsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðismanna í Mosfellsbæ
18. Dagrún Ósk Jónsdóttir, ritari UVG
19. Sigrún Jónsdóttir fyrrverandi framkvæmdastýra Samfylkingarinnar og fyrrv. bæjarfulltrúi í Kópavogi
20. Margrét Erla Þórsdóttir, viðburðastýra UVG
21. Sigrún Skaftadóttir fyrrum Feminist Network Coordinator fyrir Young European Socialist, fyrrum alþjóðaritari Ungra Jafnaðarmanna og núverandi stjórnarmaður í kvennahreyfinu Samfylkingarinnar.
22. Sólveig Skaftadóttir -stjórnarmeðlimur í Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar
23. Líf Magneudóttir – borgarfulltrúi vinstri grænna og forseti borgarstjórnar
24. Margrét Lind Ólafsdóttir – bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi og formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar
25. Elín Margrét Böðvarsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
26. Kristbjörg Þórisdóttir varaþingmaður Framsóknarflokksins.
27. Sóley Tómasdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Vinstri grænna
28. Helga Vala Helgadóttir, þingman Samfylkingarinnar.
29. Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar
30. Þórlaug Borg Ágústdóttir, ráðsfulltrúi og fyrrverandi formaður Pírata í RVK
31. Eva Einarsdóttir, varaborgarfulltrúi og fv varaþingkona, Björt Framtíð
32. Sólveig Anna Jónsdóttir, Sósíalistaflokki Íslands
33. Aðalheiður Björt Unnarsdóttir, varabæjarfulltrúi Framsóknar, Fljótsdalshéraði
34. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, fyrrv. þingkona Samfylkingarinnar
35. Laufey Líndal Ólafsdóttir, meðlimur í bráðabirgðastjórn Sósíalistaflokks Íslands.
36. Guðrún Arna Kristjánsdóttir, fyrrverandi varabæjarfulltrúi Garðabæ, Samfylkingin
37. Pálína Margeirsdóttir bæjarfulltrúi Framsóknar, Fjarðabyggð.
38. Auður Lilja Erlingsdóttir. VG
39. Margrét M. Norðdahl, varaborgarfulltrúi í Reykjavík, Samfylkingin
40. Dagbjört Pálsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri
41. Halldóra Mogensen – þingkona Pírata
42. Eva Pandora Baldursdóttir, fráfarandi þingmaður og oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi.
43. Svandís Svavarsdóttir formaður þingflokks VG
44. Eydís Ásbjörnsdóttir, bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð.
45. Ragnheiður Hergeirsdóttir f.v. bæjarstjóri og bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg.
46. Bryndís Haralds þingkona og bæjarfulltrúi, Sjálfstæðisflokkurinn.
47. Arna Ír Gunnarsdóttir bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Árborg.
48. Þórhildur Hlín ungir jafnaðarmenn
49. Halla Signý Kristjánsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins
50. Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri, Vinstri græn
51. Sandra Rán Ásgrímsdóttir, formaður Sambands ungra Framsóknarmanna
52. Ída Finnbogadóttir, varaformaður Ungra jafnaðarmanna í Reykjavík
53. Kristín Elfa Guðnadóttir, ráðsfulltrúi Pírata hjá Reykjavíkurborg.
54. Rósanna Andrésdóttir, Samfylkingunni
55. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður, ritari og starfandi varaformaður Sjálfstæðisflokkurinn
56. Eva H. Baldursdóttir, varaborgarfulltrúi samfylkingarinnar og formaður félags frjálslyndra jafnaðarmanna
57. Esther Ösp Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð
58. Anna Sigríður Guðnadóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ.
59. Ingibjörg Þórðardóttir, varaþingmaður og alls konar, VG
60. Sigrún Blöndal bæjarfulltrúi L-listans á Fljótsdalshéraði og formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi
61. Arna Lára Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Í-listans í Ísafjarðarbæ og formaður bæjarráðs
62. Katla Hólm Þórhildardóttir Píratar
63. Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, Vinstri Græn, fyrrverandi formaður UVG
64. Maria Hjálmarsdóttir varaþingmaður samfylkingarinnar í Norðaustur kjördæmi
65. Margrét Gauja Magnúsdóttir. Bæjarfulltrúi í Hafnarfirði. Samfylkingin.
66. Sigurþóra Bergsdóttir, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Seltjarnarnesi
67. Áslaug Hulda Jónsdóttir. Formaður bæjarráðs Garðabæjar. Sjálfstæðisflokkur.
68. Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir varabæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð
69. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir, Samfylkingunni
70. Silja Snædal Drífudóttir, fyrrverandi alþjóðaritari UVG og varamaður í stjórn VG í Reykjavík
71. Erla Björg Guðmundsdóttir, Samfylkingunni
72. Alma Lísa Jóhannsdóttir . VG
73. Marta Sigurðardóttir. Bæjarfulltrúi í Grindavík. Samfylkingin.
74. Tanja Rún Kristmannsdóttir, varaformaður Sambands ungra framsóknarmanna
75. Elín Oddný Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi og ritari VG
76. Ingibjörg Ólöf Isaksen, bæjarfulltrúi á Akureyri – Framsóknarflokkurinn
77. Oddný Sturludóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar
78. Theodóra S. Þorsteinsdóttir – formaður bæjarráðs Kópavogsbæjar og fyrrum þingmaður Bjartrar framtíðar.
79. Ingibjörg Ingvadóttir, Framsóknarflokki
80. Eydís Blöndal, önnur varaþingkona VG í Reykjavík suður.
81. Nichole Leigh Mosty Formaður hverfisráðs Breiðholts og fyrrum þingmaður Bjartar framtíðar
82. Halla Gunnarsdóttir, varaþingmaður VG
83. Kristín Sævarsdóttir varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi
84. Ásta Hlín Magnúsdóttir, fyrrverandi formaður Sambands ungra framsóknarmanna.
85. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kvennaframboði, Kvennalista, Reykjavíkurlista og Samfylkingu
86. Iðunn Garðarsdóttir, Vinstri græn.
87. Dóra Sif Tynes, fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar
88. Andrea Hjálmsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi VG á Akureyri
89. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir – ráðsfulltrúi Pírata hjá Reykjavíkurborg
90. Margrét Tryggvadóttir varaþingmaður Samfylkingarinnar.
91. Jónína Erna Arnardóttir, sveitarstjórnarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn
92. Guðrún Ágústsdóttir, aðal-eða varaborgarfulltrúi frá 1978-1999. Forseti borgarstjórnar frá 1994-1999. VG
93. Jóna Sólveig Elínardóttir, varaformaður Viðreisnar.
94. Guðrún Jóna Jónsdóttir, fyrrum forman Ungra jafnaðarmanna
95. Sigríður Huld Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri.
96. Hildur Friðriksdóttir, VG.
97. Sigríður Pétursdóttir VG, formaður hverfisráðs Kjalarness
98. Una Hildardóttir, gjaldkeri og 1 varaþingmaður VG í SV
99. Gyða Dröfn Hjaltadóttir, formaður Ungra vinstri grænna
100. Ása Elín Helgadóttir, framkvæmdarstjórn UJ, Samfylkingin.
101. Marzibil S. Sæmundardóttir fyrrverandi varaborgarfulltrúi S
102. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins
103. Dóra Magnúsdóttir, varaborgarfulltrúi í Rvk. Samfylking
104. Sema Erla Serdar. Fyrrv. formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar og fyrrv. formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi.
105. Gerður Jónsdóttir stofnfélagi í Miðflokknum. Fyrrverandi formaður Landssambands framsóknarkvenna, fyrrverandi bæjarfulltrúi Framsóknar á Akureyri
106. Adda María Jóhannsdóttir bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði
107. Dóra Björt Guðjónsdóttir, fyrrverandi formaður Ungra Pírata, 2. varaþingmaður Pírata
108. Kristín María Birgisdóttir formaður bæjarráðs Grindavíkurbæjar, Lista Grindvíkinga
109. Anna Lísa Björnsdóttir VG
110. Sanna Magdalena Mörtudóttir, varaformaður bráðabirgðarstjórnar Sósíalistaflokks Íslands
111. Gréta Ingþórsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins
112. Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, Framsóknarflokki
113. Ásta Guðrún Helgadóttir, fyrrverandi þingmaður pírata
114. Inga Auðbjörg Straumland, fyrrverandi varaformaður ungra jafnaðarmanna
115. Svala Jónsdóttir, varamaður í nefnd fyrir VG
116. Freyja Steingrímsdóttir, stjórnmálaráðgjafi og meðlimur í Samfylkingunni
117. Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir, varaformaður UVG
118. Helga Dögg Björgvinsdóttir, fyrrverandi formaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna
119. Anna Kolbrún Árnadóttir, þingmaður Miðflokksins
120. Guðný Hildur Magnúsdóttir, VG, fyrrverandi formaður VG á Vestfjörðum og núverandi stjórnarkona VG á Vestfjörðum
121. Jóna Björg Sætran, 4 á lista Framsóknar- og flugvallarvina, númer 5 á lista Framsóknarflokksins til alþingiskosninga 2017
122. Birna Hafstein, Viðreisn
123. Steinunn Ýr Einarsdóttir, formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar
124. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata
125. Bryndís Friðgeirsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Ísafjarðarbæ, fv. formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar og fv. formaður Samfylkingarinnar á N Vestfjörðum
126. Rannveig Ernudóttir fyrrum ritari Pírata og núverandi vararitari Pírata, frambjóðandi með Pírötum 2017
127. Andrea Ósk Sigurbjörnsdóttir, innanstarfsfulltrúi UVG
128. Greta Björg Egilsdóttir varaborgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina og nú síðast á lista Miðflokksins
129. Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir fyrrv formaður framkvæmdaráðs Pírata og núverandi formaður Pírata í Hafnarfirði.
130. Guðrún Ágústa þórdísardóttir fyrrverandi varaþingmaður Pírata
131. Álfheiður Eymarsdóttir kafteinn Pírata á Suðurlandi og varaþingmaður.
132. Fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akureyri til 12 ára, formaður Félags verslunar og skrifstofufólks Akureyri í 10 ár. Miðstjórn ASÍ og stjórn LÍV.
133. Úlfhildur Rögnvaldsdóttir, Stofnfélagi í Miðflokknum, áður í Framsókn.
134. Ása Richardsdóttir Samfylkingin ,bæjarfulltrúi Kópavogi/ varaforseti bæjarstjórnar
135. Ása Lind Finnbogadóttir fyrrverandi frambjóðandi Dögunar til Alþingis en er skráð bæði í Pírata og Samfylkingu
136. Þorgerður María Halldórsdóttir fv Sjálfstæðisflokknum
137. Margrét Kristín Helgadóttir, Fyrrverandi bæjarfulltrúi Bjartrar framtíðar í bæjarstjórn Akureyrar.
138. Guðrún Erla Geirsdóttir ein af stofnendum Kvennaframboðsins og Samfylkingarinnar og fyrrverandi varaborgarfulltr
139. Björk Vilhelmsdóttir fyrrverandi borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og Reykjavíkurlistans
140. Þórhalla Rein Aðalgeirsdóttir, fyrrv. formaður UJ í Gbæ og Álftanesi, fyrrv. stjórn Röskvu.
141. Halldóra Jónasdóttir, einkaþjálfari og flugkona, virk Pírata og frambjóðandi í SV fyrir Pírata 2017.
142. Hanna Bjartmars Arnardóttir, fyrrverandi bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
143. Þorgerður Jóhannesdóttir, skrifstofustjóri Samfylkingarinnar og fyrrverandi bæjarfulltrúi
144. ilja Dōgg Baldursdóttir bæjarfulltrúi á Akureyri L- listinn
145. Sigrún H Pálsdóttir, bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar
146. María Pétursdóttir, Sósíalistaflokkur Íslands
147. Ingibjörg Stefánsdóttir, í stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík, fv, varaformaður Samfylkingarfélagsins í Reykjavík og varamaður í framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar. Fyrrverandi starfskona Kvennalistans.
148. Sigríður Sigmarsdóttir Sjálfstæðisflokkur
149. Anna Margrét Guðjónsdóttir, fv. varaþingkona Samfylkingarinnar, í stjórn fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík.
150. Sigrún Ríkharðsdóttir, framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar.
151. Hólmfríður Bjarnadóttir Pírati
152. Unnur Tryggvadóttir Flóvenz, fv. varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi og fv. málefnastýra Ungra jafnaðarmanna.
153. Sigríður M Guðjónsdóttir Bæjarfullltrúi Fjarðslistans í Fjarðabyggð
154. Sigríður Gísladóttir, formaður VG á Vestfjörðum.
155. Eva Dögg Guðmundsdóttir, stjórnarmeðlimur í Stjórn Samfylkingarfélags Reykjavíkur SffR
156. Ragnheiður Elín Árnadóttir, fv. þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins
157. Steinunn Þóra Árnadóttir, þingkona VG
158. Steinunn Rögnvaldsdóttir, fyrrverandi formaður Ungra vinstri grænna.
159. Geirlaug Jóhannsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Borgarbyggð, Samfylking
160. Kristín Soffía Jónsdóttir borgarfulltrúi Samfylkingarinnar
161. Guðrún Íris Valsdóttir
Fyrrverandi bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð
162. Bryndís Sigurðardóttir, fyrsti formaður Samfylkingar í Hveragerði og á lista Samfylkingar í Suðurkjördæmi fyrir nokkrum kosningum
163. Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar
164. Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir Sjálfstæðisflokkurinn
165. Hanna Birna Kristjánsdóttir, fv ráðherra og borgarstjóri Sjálfstæðisflokksins
166. Ásta Kristín Sigurjónsdóttir , fv. bæjarfulltrúi og fv. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins
167. Diljá Ámundadóttir, fv. varaborgarfulltrúi BF.
168. Sigrún Björk Jakobsdóttir, Sjálfstæðisflokki. Fv. Bæjarfulltrúi og Bæjarstjóri á Akureyri.
169. Bryndís Gunnlaugsdóttir
fv. bæjarfulltrúi, fv. formaður SUF og fv. varaþingmaður Framsóknar
170. Ingibjörg Óðinsdóttir, fyrrv. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.
171. Elva Dögg Ásud. Kristindóttir oddviti VG í Hafnarfirði og bæjarfulltrúi í bæjarstjórn
172. Borghildur Sölvey Sturludóttir varabæjarfulltrúi BF í Hafnarfirði
173. Þorgerður Anna Arnardóttir Sjálfstæðisflokkurinn
174. Valgerður Halldórsdóttir fyrrverandi bæjarfulltrúi í Hafnarfirði – Samfylking
175. Vilborg Oddsdóttir Samfylking 5 sæti suður Reykjavík fyrir síðustu Alþingiskosningar
176. Jónína Sigurðardóttir, Stjórnarmaður í Heimdalli og oddviti Vöku félags lýðræðissinnaðra stúdenta á Menntavísindasviði – Sjálfstæðisflokkurinn
177. Tinna Dögg Guðlaugsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs og fv. Varaþingmaður
178. Stefanía Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar
179. Katrín Ósk, varaþingmaður Sjálfstæðisflokkins í SV, varaformaður Stefnis félag ungra í Hafnarfirði og oddviti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta við HÍ.
180. Jenný Heiða Zalewski, varaformaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar.
181. Ásrún Birgisdóttir, ritari Félags sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi í Reykjavík
182. María Júlía Rúnarsdóttir, Framsókn
183. Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins
184. Margrét Gísladóttir, fyrrv. aðstoðarmaður utanríkisráðherra og fyrrv. ráðgjafi forsætisráðherra Framsókn
185. Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir. Varaþingkona Framsóknar og stjórnarmeðlimur SUF
186. Erla Hlynsdóttir, framkvæmdastjóri Pírata
187. Dagbjört Hákonardóttir, fv. gjaldkeri og meðstjórnandi Ungra Jafnaðarmanna, Röskvukona og fv. formaður Ungra Evrópusinna
188. Inga Sæland þingmaður og formaður Flokks fólksins
189. Ásrún Helga Kristinsdóttir bæjarfulltrúi Í Grindavík fyrir Framsóknarflokkinn
190. Eva Margrét Kristinsdóttir, fv. varabæjarfulltrúi og fv. formaður ungra jafnaðarmanna á Seltjarnarnesi. Samfylking.
191. Ásgerður K. Gylfadóttir, bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Hornafirði og varaþingmaður fyrir Framsóknarflokkinn í Suðurkjördæmi.
192. Guðrún Katrín fyrrverandi flokkstjórnarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrverandi bæjarstjórnarmaður á Seyðisfirði fyrir Samfylkinguna.
193. Guðveig Eyglóardóttir oddviti Framsóknar í sveitarstjórn Borgarbyggðar.
194. Lára Björg Björnsdóttir, VG.
195. Sæunn Stefánsdóttir, fyrrum ritari og þingmaður Framsóknarflokksins
196. Dagný Jónsdóttir, fv. þingmaður Framsóknarflokksins
197. Anna Björg Níelsdóttir bæjarfulltrúi í Sveitarfélaginu Ölfusi fyrir Framfarasinna
198. Inga María Hlíðar Thorsteinson, Sjálfstæðisflokkurinn
199. Sunna Rós Víðisdóttir, fv. formaður framkvæmdaráðs Pírata- Píratar
200. Elsa Kristjánsdóttir, gjaldkeri Pírata
201. Ragnhildur Vigfúsdóttir Kvennalista og síðar Samfylkingin
202. Inga Þyri Kjartansdóttir fv framkvæmdastjóri Landssambands Framsóknarkvenna, í miðstjórn og varamaður í kjördæmisráði Framsóknarflokks í SV.
203. Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, fv. Varaborgafulltrúi Samfylkingarinnar
204. Fríða Rós Valdimarsdóttir, fyrrverandi frambjóðandi Kvennalistans.
205. Kolbrún Birna Hallgrímsdóttir Bachmann, Samfylkingin
206. Halla Sigríður Steinólfsdóttir varaoddviti í sveitarstjórn Dalabyggðar og í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
207. Hafdís Gunnarsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi og formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ.
208. Sif Huld Albertsdóttir, varabæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Ísafjarðarbæ.
209. Birna Lárusdóttir, Sjálfstæðisflokki. Fyrrverandi bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, fyrrverandi varaþingmaður í NV-kjördæmi.
210. Hildur Knútsdóttir, fyrrv. varaþingmaður VG.
211. Hrefna Guðmundsdóttir, Björt framtíð, á lista bæði í sveitastjórnar- og alþingiskosningum
212. Sara Dögg Svanhildardóttir formaður jafnréttisnefndar Viðreisnar
213. Þórunn Egilsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins
214. Sara Oskarsson varaþingmaður Pírata.
215. Ásta Dís Guðjóns, formaður Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu.
Var í 2 sæti Rvk-N fyrir Dögun 2016 og í stjórn Dögunar.
Sit í bráðabirgðastjórn Sósíalistaflokksins.
216. Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík suður.
217. Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.
218. Jasmina Crnac, Oddviti Bjarta framtíðar í Suðurkjördæmi. Einnig fulltrúi velferðarnefndar í Reykjanesbæ fyrir A-lista
219. Sigríður Elva Konráðsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi
220. Guðrún Inga Ingólfsdóttir, hagfræðingur og fyrrverandi varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins
221. Oddný G. Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar.
222. Una María Óskarsdóttir uppeldis-, menntunar- og lýðheilsufræðingur, 1. varaþingmaður Miðflokksins í Suðvesturkjördæmi.
223. Brynhildur S. Björnsdóttir, Björt framtíð
224. Halldóra Baldursdóttir, Fulltrúi gæðamála OR, Miðflokkurinn.
225. Ólína Freysteinsdóttir, Fjölskyldufræðingur, Samfylkingin
226. Drífa Sigfúsdóttir, MS í mannauðsstjórnun, f.v. forseti bæjarstjórnar/varabæjarstjóri og varamaður á Alþingi, stjórn LFK, framkvæmdastjórn o.fl. Framsóknarflokki
227. Anna Pála Sverrisdóttir, fyrrum formaður Ungra jafnaðarmanna og fyrrum varaþingmaður Samfylkingarinnar.
228. Anna Lóa Ólafsdóttir bæjarstjórn RNB 2014-15.
229. Jónína Holm bæjarfulltrúi N listans sem er þverpólitískt framboð í Garði.
230. Sólveig Guðjónsdóttir 3 sæti miðflokkur suðurkjör
231. Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðreisnar
232. Auður Alfa Ólafsdóttir, framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar
233. Hildur Karen Sveinbjarnardóttir, Sjálfstæðisflokki
234. Anna Bara Ólafsdóttir
Framkvæmdarstjóri Miðflokkurinn
235. Sunna Snædal, varakona í Velferðarráði, VG
236. Valgerður Sveinsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins
237. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri og formaður kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í NV kjördæmi.
238. Áslaug Friðriksdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksin
239. Laufey Elísabet Gissurardóttir, fjölskyldunefnd á Seltjarnarnesi, Samfylking
240. Oktavía Hrund Jónsdóttir, 1. varaþingkona Pírata suðvestur og stjórnarformaður Evrópskra Pírata
241. Sigríður María Egilsdóttir, varaþingmaður og stjórnarmeðlimur Viðreisnar.
242. Lovísa Rósa Bjarnadóttir forseti bæjarstjórnar á Hornafirði, Sjálfstæðisflokki
243. Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Samfylkingunni
244. Þóra Magnea Magnúsdóttir stjórnarmaður í VG, Reykjavík.
245. Ásdís Bjarnadóttir 4 sæti Miðflokknum Suðurkjördæmi.
246. Ragnheiður Ríkharðsdóttir fv. þingmaður og þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins
247. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, ritari stjórnar VG í Reykjavík.
248. Margrét K. Sverrisdóttir fv. varaþingmaður Frjálslynda flokks og síðar borgarfulltrúi Samfylkingar.
249. Herdís Hjörleifsdóttir, 7 sæti í Miðflokknum í Suðurkjördæmi
250. Sigríður Sólveig, grasrótin, Sjálfstæðisflokkurinn
251. Nanný Arna Guðmundsdóttir forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar
252. Jórunn Einarsdóttir fyrrum bæjarfulltrúi og varaþingmaður VG
253. Eva Magnúsdóttir, fyrrverandi formaður fræðslunefndar í Mosfellsbæ og fyrrverandi varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
254. Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina
255. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir aðstoðarmaður félags-og jafnréttismálaráðherra og varaþingmaður Viðreisnar
256. Jóna Björg Hlöðversdóttir VG
257. Sigríður Indriðadóttir, forseti bæjarstjórnar á Akranesi, Sjálfstæðisflokki
258. Rakel Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi Akranesi, Sjálfstæðisflokki
259. Anna Aurora Waage Óskarsdóttir Framkvæmdastjóri og í stjórn Framsóknarflokksins í Mosfellsbæ.
260. Bergljót Kristinsdóttir, formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi og varabæjarfulltrúi.
261. Hildur Helga Gísladóttir formaður Kjördæmissambands framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi
262. Lilja Alfreðsdóttir, alþingiskona og varaformaður Framsóknarflokksins
263. Linda Hrönn Þórisdóttir, formaður Landssambands Framsóknarkvenna
264. Bjarnveig Ingvadóttir, Framsóknarflokkurinn, ritari Landsambands Framsóknarkvenna
265. Rakel Dögg Óskarsdóttir Framsókn og flugvallarvinir.
266. Elín Jóhannsdóttir, fyrrverandi varaþingmaður Framsóknarflokksins
267. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins.
268. Vala Pálsdóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna
269. Elín Jónsdóttir, formaður sjálfstæðisfélagsins í Árbæ, selás og ártúni og meðlimur í stjórn varðar
270. Hreindís Ylva Garðarsd. Holm, VG
271. Eygló Björg Jóhannsdóttir, formaður kjördæmasambands framsóknarmanna í Norðausturkjördæmi.
272. Gyða R. Stefánsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
273. Gerður Pálsdóttir fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar, Samfylkingin
274. Vilborg Þ. Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi á Akranesi, Björt framtíð.
275. Aníta Rut Hilmarsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
276. Bryndís Bjarnadóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
277. Margrét Pétursdóttir stjórnarkona í VG
278. Þórunn Sveinbjarnardóttir, fv. þingkona Samfylkingar
279. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrrverandi Borgarstjóri og þingkona Samfylkingar.
280. Silja Rán Arnarsdóttir, Sjálfstæðisflokkurinn
281. Erla Guðrún Gísladóttir. VG
282. forseti bæjarstjórnar Vesturbyggðar. Sjálfstæðisflokkurinn.
283. varaformaður Landssambands Sjálfstæðiskvenna
284. Fyrrum aðstoðarmaður ráðherra, Samfylkingin
285. Andrea Eyland Sóleyjar- og Björgvinsdóttir fyrrverandi kosningastýra í Reykjavík. Samfylkingin.
286. Margrét Frímann, Samfylking
287. Björg Eva Erlendsdóttir, Framkvæmdastjóri VG og fyrrv. stjórnarfulltrúi hér og þar
288. Andrea Gunnarsdóttir, stjórnarmeðlimur Sambands ungra Sjálfstæðismanna.
289. Fyrrverandi varaþingmaður Borgarahreyfingarinnar.
290. Eydís Bára Jóhannsdóttir, formaður Framsóknarfélags Húnaþings vestra.
291. fv. formaður bæjarráðs og fv. stjórnarmaður í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, Sjálfstæðisflokkurinn
292. v. forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og fv. alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.
293. fv. Þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, Hreyfingarinnar og Pírata
294. Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir, stjórn ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík.
295. Hildur Sverrisdóttir, varaþingmaður, Sjálfstæðisflokki
296. María Grétarsdóttir, bæjarfulltrúi, FÓLKIÐ- í bænum, Garðabæ
297. Unnur Brá Konráðsdóttir,
298. fv. forseti Alþingis og varaþingmaður, Sjálfstæðisflokki
299. Hildur Margrétardóttir, formaður Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ og 2. varabæjarfulltrúi
300. Hólmfríður Garðarsdóttir, aðgerðarsinni víða, m.a. í Samfylkingu og með Kvennalista
301. Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra, Sjálfstæðisflokki
302. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði og formaður sveitarstjórnarráðs Sjálfstæðisflokksins.
303. Bergþóra Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks, VG.
304. Nanna Kristín Tryggvadóttir, varamaður í miðstjórn, Sjálfstæðisflokki
305. Ásta Hlín Magnúsdóttir, fyrrverandi formaður Sambands ungra framsóknarmanna.
306. Guðrún M. Ó. Steinunnardóttir. Fyrrverandi bæjarfulltrúi Fjarðalistans í Fjarðabyggð.

bryndis@bb.is

DEILA