Eldur kom upp í vélarrúmi Bjargeyjar ÍS 41 er verið var að landa úr bátnum í Ísafjarðarhöfn skömmu fyrir sex í morgun. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og varð skipsverjum ekki meint af. Mbl.is hefur eftir varðstjóra í lögreglunni á Ísafirði að fjórir hafi verið um borð í bátnum þegar eldurinn kom upp, en báturinn var við bryggju. Slökktu þeir eldinn og gekk greiðlega að reykræsta. Bjargey er 14 brúttólestir að stærð.
smari@bb.is