Vikuna 7. – 11. ágúst fer fram sumarnámskeið fyrir 5 – 8 ára börn í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Dagskráin verður frá kl. 10 – 12 alla daga og unnið verður með bátsferðalag sem þema í gegnum tónlist, myndlist og sögur.

Námskeiðinu er ætlað að örva íslenskukunnáttu þar sem íslenska er annað mál barnanna eða eitt af mörgum tungumálum. Lögð verður áhersla á að börn sem búa erlendis geti ræktað tengsl sín við Ísland og skapað tengingar við börn sem búa á Íslandi.

Hugmyndin að verkefninu vaknaði í fyrra þegar áhugafólk um fjöltyngi fundaði á Ísafirði. Anna Hildur Hildibrandsdóttir stýrir framkvæmd þess í samstarfi við Menningarmiðstöðina Edinborgarhúsinu og Ísafjarðarbæ.

Kennarar eru Jóngunnar Biering Margeirsson tónlistarmaður og myndlistarkonurnar Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir (t.v.) og Nína Ivanova. Jóngunnar er kennari við tónlistarskóla Ísafjarðar og Dómhildur kennir við Grunnskóla Ísafjarðar.

Námskeiðið í sumar er tilraun sem tengist hugmyndum um að stofna sumarskóla fyrir fjöltyngd börn á Ísafirði.

Frekari upplýsingar veitir Anna Hildur – anna@annahildur.com – eða Jóngunnar í síma 620 5778

bryndis@bb.is

DEILA