Styrkja vestfirska námsmenn

Eins og undanfarin ár verða veittir styrkir úr Menningarsjóði vestfirskrar æsku til framhaldsnáms sem vestfirsk ungmenni geta ekki stundað í heimabyggð sinni. Félagssvæði Vestfirðingafélagsins er Ísafjarðarsýslur, Ísafjörður, Stranda- og Barðastrandasýslur. Á síðasta ári voru veittir styrkir að upphæð 450 þúsund til þriggja ungmenna frá Vestfjörðum. Í stjórn sjóðsins eru: Haukur Hannibalsson,  Ásdís Sæmundsdóttir og Sigurður H. Magnússon.

Að öðru jöfnu njóta eftirtaldir forgangs um styrk úr sjóðnum:

  1. Ungmenni sem misst hafa fyrirvinnu, föður eða móður.
  2. Einstæðar mæður.
  3. Konur, meðan fullt launajafnrétti er ekki í raun.
  4. Ef engar umsóknir eru frá Vestfjörðum, koma umsóknir Vestfirðinga búsettum annars staðar til greina.

Umsóknir skulu sendar fyrir lok júlí mánaðar 2017 til Menningarsjóðs vestfirskrar æsku c/o Haukur Hannibalsson, Digranesheiði 34, 200 Kópavogur og skal umsögn fylgja frá skólastjóra og/eða öðrum sem þekkja viðkomandi nemanda, efni hans og aðstæður. Netfang:  haukurhannibalsson@simnet.is.

 

DEILA