Basknesk hátíð á Snæfjallaströnd

Föstudaginn 14. júlí kl 19-22 verður basknesk hátíð á Snæfjallaströnd, á söguslóðum Spánverjavíganna.

Það er Ferðaþjónustan í Dalbæ og Snjáfjallasetur sem standa að hátíðinni í samstarfi við Baskavinafélagið á Íslandi. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Francisco Javier Jáuregui flytja basknesk þjóðlög og sýnd verður kvikmyndin Baskavígin. Á undan sýningu myndarinnar spjallar framleiðandi hennar, Hjálmtýr Heiðdal um myndina ásamt Kristni Hrafnssyni.

Hér má nálgast meiri upplýsingar um hátíðina.

DEILA