„Fyrsti fiskurinn sem strákurinn setur í var þessi svaka þorskur,“ segir leiðsögumaðurinn Róbert Schimdt í samtali við mbl.is. 11 ára austurrískur ferðamaður veiddi í gær 20 kílóa þorsk þegar hann og faðir hans fóru í veiði með Róberti úti fyrir Suðureyri. Róbert, sem er þaulvanur leiðsögumaður í sjóstangaveiði, hefur aldrei heyrt heyrt um að jafnungur krakki veiði jafnstóran fisk en fiskurinn var 134 sentímetrar, ekki nema 16 sentímetrum minni en veiðimaðurinn.
„Hann réði ekki neitt við neitt strákgreyið. Ég hjálpaði honum að landa fisknum en hann var rosalega glaður og er held ég enn þá brosandi,“ segir Róbert í samtali við blaðamann mbl.is.