Þriðja matsáætlunin afgreidd

Sjókvíar í Arnarfirði.

Skipulagsstofnun hefur í þrígang í þessari viku fallist á matsáætlanir fyrir aukið laxeldi á Vestfjörðum. Í fyrsta lagi fyrir 7.600 tonna laxeldi Arctic Sea Farm í Ísafjarðardjúpi, í annan stað fyrir 10.000 tonna laxeldi Arnarlax í Ísafjarðardjúpi og nú síðast féllst Skipulagsstofnun á matsáætlun Arctic Sea Farm fyrir 4.000 tonna laxeldi í Arnarfirði.

Matsáætlun er einn liður í umhverfismatsferlinu sem lýkur með frummatsskýrslu sem Skipulagsstofnun gefur álit á og þá á að vera búið að draga fram neikvæð umhverfisáhrif af framkvæmd sem er til umfjöllunar.

Í athugasemdum Skipulagsstofnunar við matsáætlun Arctic Sea Farm kemur meðal annars fram að í frummatsskýrslu verði að gera gera grein fyrir spá um líklega dreifingu smitsjúkdóma og laxalúsar frá eldissvæðum fyrirhugaðs eldis, byggt á niðurstöðum straummælinga á eldissvæðum. Meta þarf áhættu af þeim þáttum fyrir villta laxfiska í Arnarfirði og á Vestfjörðum.

Skipulagsstfonun segir að í frummatsskýrslu þurfi að gera ítarlega grein fyrir og meta hættu á að fiskur sleppi úr eldiskvíum og hverjar afleiðingar slíkra sleppinga geta orðið. Meta þarf hættu á erfðablöndun villtra laxastofna vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar. Slíkt mat byggi meðal annars á áætlun um fjölda fiska sem sleppa úr eldi, upplýsingum um útbreiðslu og þéttleika laxfiska á Vestfjörðum og staðsetningu laxveiðiáa á Vestfjörðum og á Vestur- og Norðurlandi.

Einnig þarf að gera ítarlega grein fyrir öðrum framkvæmdakostum, svo sem með geldfiski, í lokuðum kerfum eða á landi, til að ná markmiði framkvæmdarinnar og bera saman með tilliti til umhverfisáhrifa. Skipulagsstofnun segir að brýnt sé að sú umfjöllun byggi á bestu fáanlegum upplýsingum um stöðu fiskeldis með geldfiski eða í lokuðum kerfum, þar sem reynsla er komin af slíku.

DEILA