12,2 milljón króna sparnaður á hvern einstakling

Reiknaður meðalsparnaður á hvern útskrifaðan einstakling frá VIRK Starfsendurhæfingarsjóði nam 12,2 milljónum króna á árinu 2016 samkvæmt skýrslu sem Vigfús Ásgeirsson tryggingastærðfræðingur hjá Talnakönnun hf vann fyrir stjórn VIRK. Meðalsparnaður á einstakling eykst milli ára, var rúmlega 10 milljónir á árunum 2013-2015.Í niðurstöðum skýrslunnar kemur fram að 13,6 milljarða króna ávinningur hafi verið af starfsemi VIRK árið 2016, árið 2015 var hann 13,8 milljarðar, 11,2 milljarðar króna 2014 og 9,7 milljarðar á árinu 2013. Á sama tíma var rekstrarkostnaður VIRK árið 2016 2,4 milljarðar, 2,2 milljarðar 2015, 2 milljarðar 2014 og 1,3 milljarðar árið 2013.

Þetta er fjórða árið í röð sem VIRK fær Talnakönnun til að greina árangur og hagnað af starfsemi þeirra. Unnið var útfrá ópersónugreinanlegum upplýsingum úr gagnagrunni VIRK um þá einstaklinga sem útskrifuðust úr þjónustu þeirra, auk þess að unnið var með upplýsingar lífeyrissjóða um meðallaun. Fundinn var mælikvarði á sparnað af starfsemi VIRK sem tekur mið af raunverulegum árangri, árangri sem felst í að flýta endurhæfingu, stytta tímabil óvinnufærni einstaklinga og minnka tíðni örorku.

Niðurstöður skýrslunnar sýna fram á að ábatinn af starfsendurhæfingarþjónustu á vegum VIRK skilar sér til Tryggingastofnunar, lífeyrissjóða og ríkisins í formi aukinna skatttekna. Ofan á þetta kemur svo bættur hagur einstaklinga, bæði fjárhagslegur auk þeirra lífsgæða sem felast í því að geta tekið þátt í samfélaginu.

Starfsendurhæfingarsjóður virk birti frétt um þetta fyrr í mánuðinum og má hér skoða skýrsluna í heild sinni.

annska@bb.is

 

DEILA